top of page

Akashic Records 101 + Creative Channeling & Healing - ICELAND // Reykjavik

Tue, Jul 28

|

Bolholt 4

byrjenda námskeið // beginners course + an extra day of Creative Channeling & Healing

Akashic Records 101 + Creative Channeling & Healing - ICELAND // Reykjavik
Akashic Records 101 + Creative Channeling & Healing - ICELAND // Reykjavik

Time & Location

Jul 28, 2026, 2:00 PM GMT – Jul 29, 2026, 5:00 PM GMT

Bolholt 4, Bolholt 4, 105 Reykjavík, Iceland

About the Event

Akashic Records 101



Hefur þig langað að skyggnast inn í ævintýralegan heim Akashic Records? Og jafnvel læra að opna þín eigin skjöl?

Spyrja spurninga um farveg þinn og öðlast einstakt innsæi í veganesti fyrir lífið?


Akashic skrárnar sameina orku sérhverrar sálar og verkefna sem eru til í formi hér. Sérhver einstaklingur á sér sitt eigið "orku DNA" sem er gagnlegt að spyrja spurninga um í heimi Akashic skjalanna. Þessi vinna hefur gefið fjölmörgum alveg sérstaka hugarró og svarað mörgum spurningum sem áður virtust ósvaraðar. Hægt er að öðlast dýpri þekkingu á eigin farvegi, skilja sambönd betur og byðja um hjálp við ýmis konar sköpun.

Bækur og tónverk hafa verið skrifuð í gegnum Akashic skrárnar.

Listaverk flæða áreynslulaust í gegnum þessa orkuvinnu og allt sem virtist ómögulegt, virðist mögulegt...


Á þessu grunnnámskeiði mun Jósa Goodlife leiða í gegnum sérstaka hugleiðslu til að slaka á hinu veraldlega og opna fyrir Akashic skrárnar.

Þar munum við spyrja spurninga og æfa okkur í að taka á móti svörunum. Æfingarnar verða settar upp í hugleiðslu formi, sem og skriflegu.


Með auknum áhuga fólks á Akashic handleiðslu eru nú fleiri sem nýta sér þessa leið – bæði í sköpun og á persónulegum farvegi . Öll eigum við okkar eigið Akashic teymi sem ætíð er til staðar til að svara okkar spurningum. Til þess að opna fyrir streymi þessarar visku þarf einungis að tengjast ljósinu með einfaldri bæn og sitja svo með opið hjarta fyrir svörum þeirra og handleiðslu.

Þetta er dásamleg leið til að hækka orkusviðið og finna hvernig máttur sálarinnar tekur yfir takmarkað hugarskvaldur okkar daglega raunveruleika. 


og góðu fréttirnar eru: við getum öll lært að opna!


Öll eigum við okkar einstakan farveg hér á jörðu, en ekki erum við alltaf tengd við okkar æðsta sköpunarmátt. Daglegt amstur og stress á það til að afvegaleiða okkur frá farvegi sálarinnar, en Akashic skrárnar eru frábær leið til að tileinka okkur órökræna hlustun, þar sem hugurinn stígur til hliðar og við æfum okkur að taka á móti andlegum skilaboðum og handleiðslu hins guðlega. Handleiðslu sem getur hjálpað okkur að lyfta orku okkar inná farveg sálarinnar, þar sem tilgangur okkar og verkefni hér á jörðinni verða böðuð í skýru ljósi. 


Ummæli þáttakenda eftir námskeið:


" Ég vil þakka sérstaklega fyrir mig! mér fannst þetta yndislegt námskeið og Jósa kærleiksrík og hefur svo yndislega nærveru. Ég er þakklát sjálfri mér að hafa gefið mér þá gjöf að fara á þetta námskeið því það á eftir að gefa mér mikið að nota Akashic skrárnar. Takk kærlega fyrir mig og það má segja að mig þyrstir í meira og mæli heilshugar með námskeiðum með Jósu."


" Mæli 100% með þessu námskeiði! finnst alltaf meira gaman í persónu sérstaklega námskeiðið, Akashic lesningin var frábær á netinu samt sem áður! "



Jósa Goodlife starfar sem Akashic Records lesari og leiðbeinandi í Kaliforníu. 

Námskeiðið verður blanda af fróðleik, kennslu og æfingum, á íslensku (og á ensku eftir þörfum).


Vakið skal athygli á að eftir grunnnámskeiðið geta þátttakendur nýtt sér ástundun á Akashic Records sér til eigin ánægju og fyrir mótun skapandi verkefna. Þetta námskeið veitir ekki viðurkenningu fyrir lesningu fyrir aðra, en þátttakendur geta síðar bætt við framhaldsnámskeiði til að auka færni sína.



Námskeiðsskipulag:


Fyrsti dagur, Akashic Byrjendanámskeið 101

  • Fyrri partur Þriðjudaginn 28. Júlí frá 14-17 : 3 klst í persónu í Reykjavík (- nákvæm staðsetning auglýst við skráningu (miðsvæðis RVK))

  • Seinni partur: 2 klst á Zoom í nóvember (finnum tíma sem hentar öllum)


    Heildartími: 5 klst

    Verð: 22.000 ISK


    Eða 38.000 ISK í allt fyrir 5 klst námskeið 

    og einkatíma með Jósu ( einkatími að andvirði 22.000 ISK)

                                                                

    Hámarksfjöldi: 12 þátttakendur



Seinni dagur, Listræn Channeling og Heilun (valfrjálst aukanámskeið)

  • Miðvikudaginn 29. Júlí frá 14-17 : 3 klst í persónu í Reykjavík (- nákvæm staðsetning auglýst við skráningu (miðsvæðis RVK)

  • Við munum nota Akashic skrárnar til að hjálpa okkur að komast inní skapandi flæði.

  • Orkustöðvar verða virkjaðar í gegnum djúpa Akashic hugleiðslu og losun á gömlum mynstrum

  • Heilun í DNA líkama verður virkt og endurræst ásamt mögulegum "hybrid" kóðum

  • Tími gefinn fyrir frjálsa sköpun og tjáningu


    Einblínt verður á hið innra lifandi og leikandi barn, og heilun á pörtum sem ekki hafa fengið nægilegt rými fyrir sköpunargleðina.

    Mætið í þægilegum fötum og með pappír, liti og sköpunar leikföng sem kalla!


Heildartími: 3 klst

Verð: 9.500 ISK



                                                            

Hámarksfjöldi: 15 þátttakendur








Tickets

  • Byrjenda námskeið ( 5 klst. )

    3 klst. í persónu í RVK 28.JÚLÍ og svo 2 klst saman á Zoom í byrjun Sept. (finnum rétta tímann sem allir geta)

    $180.00

    +$4.50 ticket service fee

  • Byrjendanámskeið + einkatími

    góður valmöguleiki til að kafa dýpra, fá lesningu á þínum eigin skjölum með Jósu eða læra að lesa skjölin með Jósu sem persónulegan kennara (einkatími að andvirði 22.000)

    $310.00

    +$7.75 ticket service fee

  • Seinni Dagur Akashic *

    auka "leikdagur" í Akashic, fyrir listræna tjáningu, channeling og heilun - 3klst saman í persónu þann 29. Júlí 2026 í Bolholti, RVK *einungis opin fyrir þau sem hafa verið á Byrjendanámskeiði í Akashic fyrst (sjá meira í lýsingu í viðburð)

    $75.00

    +$1.88 ticket service fee

  • Akashic einkatími með Jósu

    í tilefni námskeiðs á Íslandi gefst þér kostur á að upplifa einkatíma með Jósu (live á netinu) - á 10% afslætti - linkur til að bóka verður sendur um hæl er þú pantar

    $160.00

    +$4.00 ticket service fee

Total

$0.00

Share This Event

bottom of page